Skip to product information
1 of 6

Húðfegrun

Húðslípun

Húðslípun

Verð 16.990 kr.
Verð Verð með afslætti 16.990 kr.
Afsláttur Uppselt
Svæði

Húðslípun er mjög áhrifarík og örugg húðmeðferð. Meðferðin fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðar og örvar vöxt frumna og bandvefs í undirlagi húðarinnar.

Það sem gerir Húðslípun einstaka er tæknin sem tryggir örugga og árangursríka hreinsun á ysta lagi húðarinnar. Meðferðin fjarlægir stíflur, óhreinindi og húðfitu sem er föst í svitaholum og fínum línum. Eftir meðferð verður húðin móttækilegri fyrir virkum efnum í kremum sem borin eru á andlitið. Þessi einstaka húðmeðferð hjálpar þinni húð að vera besta útgáfan af sjálfri sér.

  • Gerir áferð húðarinnar fallegri
  • Vinnur burt unglingabólur
  • Dregur úr línum og hrukkum
  • Hreinsar óhreina húð
  • Þéttir opnar svitaholur

Framkvæmd meðferðar: Silk Peel húðslípunartæki er notað í meðferðinni og er hún framkvæmd með þeim hætti að ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og demanta.

Fjöldi meðferða:  Til að fríska upp á þreytta húð næst góður árangur eftir staka meðferð. Til að vinna á óhreinindum eða öðrum húðvandamálum er hins vegar mælt með að teknar séu 3-6 meðferðir með 1-2 vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sé húð mjög óhrein og/eða örótt er mælt með að taka að lágmarki 6 meðferðir með 3 vikna millibili til að ná sem bestum árangri. 

ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.

Sjá nánari upplýsingar