Skilmálar & skilyrði

Skilmálar & skilyrði

Upplýsingar um seljanda:
Húðfegrun Ehf. 
Kt: 610700-2760,
Vegmúli 2 ,108 Reykjavík
hudfegrun(at)hudfegrun.is

Fyrirtækið sérhæfir sig í heildrænum húðmeðferðum og sölu á snyrtivörum. 

Húðfegrun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Verð:
Sendingakostnaður innan Íslands er kr. 1.290, við áskiljum okkur fullan rétt vegna fyrirvaralausra verðbreytinga svo og vegna prentvillna á netsíðu/vefverslun okkar www.hudfegrun.is . Pantanir með heimsendingu eru sendar með Íslandspósti. 

 

Greitt á netinu:
Hægt er að greiða með Visa-og Mastercard. Greiðslan er hröð og örugg í gegnum Korta.

 



Afhending:
Hægt er að fá vöruna senda heim með pósti. Pakkar undir 2kg. að þyngd í venjulegri stærð eru sendir í B pósti.

Allar pantanir eru afgreiddar innan 3 virkra eftir pöntun. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 2-4 virkir dagar, fyrir vöru sem til er á lager. Kaupandi getur einnig valið að sækja vöruna í Vegmúla 2 á opnunartíma Húðfegrunar. 

Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu til okkar. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. 

Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.

Öllum pöntunum dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Húðfegrun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Húðfegrun til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
 

Upplýsingar viðskiptavina:
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar s.s.nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Húðfegrun ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

 

Vöruskil:
Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun (gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu). Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda eða kaupandi skiptir um skoðun getur kaupandi skilað vörunni innan 14 daga. Varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í upphaflegri pakkningu. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneingarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignin er í formi kóða eða strimils, sem hægt er að nota jafnt í verslun sem vefverslun. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. 


Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið hudfegrun(at)hudfegrun.is áður en vöru er skilað.

 

Inneignarnótur:
Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er. Gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

 

Kvartanir:
Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Sé gallaðri vöru skilað fæst sendingarkostnaður endurgreiddur. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.


Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist.


Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

 

Aðrar spurningar:
Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.

Sendu tölvupóst á hudfegrun(at)hudfegrun.is eða hafðu samband í síma  
533-1320 á milli kl. 10-18 virka daga.